Fréttir


  • Akureyri

25.8.2016

Skipulagsdagurinn 2016 - dagskrá

Grand hótel 15. september kl. 9:00-16:00

Skipulagsdagurinn 2016 verður haldinn fimmtudaginn 15. september næstkomandi. Um er að ræða heils dags ráðstefnu á Grand Hótel í Reykjavík sem Skipulagsstofnun stendur að í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga. 

Að þessu sinni verður áhersla Skipulagsdagsins á gæði byggðar og umhverfis. Horft verður til þess hvernig beita má skipulagi til að tryggja gæði í byggðu umhverfi almennt og sérstaklega við uppbyggingu ferðamannastaða. Í því skyni höfum við fengið til liðs við okkur nokkra frábæra fyrirlesara:  

Brian Evans,  Head of Urbanism, Mackintosh School of Architecture, Glasgow School of Art. Brian mun fjalla um skipulag, staðarmótun, hönnun og aðlögun að landslagi með dæmum sem heimfæra má á íslenskar aðstæður.

Karl Otto Ellefsen, prófessor við Arkitektur- og designhøgskolen í Oslo. Karl Otto mun segja frá verkefninu „Nasjonale turistveger“ sem norska vegagerðin hefur staðið að og vakið hefur heimsathygli. http://www.nasjonaleturistveger.no/en

Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, sem mun fjalla um mótun stefnu og ákvæða um gæði byggðar og bæjarrýma í skipulagi. 

Auk þessa verður fjallað um og kynnt mörg áhugaverð skipulagsverkefni sem verið er að vinna að víðs vegar um landið.