Fréttir


  • Skipulagsdagurinn_A

8.11.2022

Skipulagsdagurinn 2022

Dagskrá og skráning

Skipulagsdagurinn fer fram þann 17. nóvember í Háteigi, Grand Hótel, Sigtúni 28 í Reykjavík.

Skipulagsdagurinn er árleg ráðstefna Skipulagsstofnunar og Sambands íslenskra sveitarfélaga um skipulagsmál. Í ár verður sjónum beint að nokkrum af helstu viðfangsefnum og áskorunum okkar tíma í skipulagsmálum og landnotkun: stafrænni vegferð, fæðuöryggi, skipulagi bæjarrýmis og orkuskiptum. Fjölbreyttur hópur sérfræðinga og hagsmunaaðila frá ríki, sveitarfélögum og úr atvinnulífinu taka til máls og má búast við áhugaverðum framsögum og frjóum umræðum. Fundarstjóri verður Guðmundur Gunnarsson, fjölmiðlamaður og fyrrverandi bæjarstjóri.

Ráðstefnugjald er 6.000 krónur. Innifalið eru kaffiveitingar, hádegisverður og léttar veitingar að ráðstefnu lokinni. Sérstakur afsláttur er fyrir háskólanema, sem greiða 3.000 krónur. Skipulagsdagurinn verður einnig í beinu streymi og geta fjarfundargestir nýtt sér forritið Sli.do til að leggja fram spurningar og taka þátt í umræðum.

Skráning fer fram hér.

Dagskrá

9.00 Opnun fundarstjóra

Guðmundur Gunnarsson, fjölmiðlamaður, fundarstjóri Skipulagsdagsins 2022

9.10 Ávarp

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra

9.20 Ávarp

Ólafur Árnason, settur forstjóri Skipulagsstofnunar


Stafræn vegferð


9.30 Digital Transformation of Planning in Scotland

Liz Pringle, forstöðumaður stafræns skipulags hjá Skipulagsstjóra skosku heimastjórnarinnar

9.55 Stafræn vegferð í skipulagsmálum: Bylting í yfirsýn, miðlun og samráði

Ólafur Árnason, settur forstjóri Skipulagsstofnunar

10.10 Pallborðsumræður

Hermann Jónasson, forstjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

Sverrir Bollason, umhverfisverkfræðingur hjá VSÓ Ráðgjöf

Kristinn Pálsson, skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar

10.40 Kaffihlé


Fæðuöryggi


11.00 Staða Íslands með tilliti til fæðuöryggis

Jóhannes Sveinbjörnsson, dósent við Landbúnaðarháskóla Íslands

11.15 Flokkun landbúnaðarlands – og hvað svo?

Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri Rangárþings eystra

11.30 Pallborðsumræður

Valgerður Rún Benediktsdóttir, lögfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga

Guðrún Lára Sveinsdóttir, sviðsstjóri aðalskipulags hjá Skipulagsstofnun

Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna

12.00 Hádegisverður

13.00 Ávarp

Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga


Bæjarrýmið


13.15 Mannlíf, byggð og bæjarrými: Leiðbeiningar um sjálfbært skipulag og vistvænar samgöngur í þéttbýli

Magnea Guðmundsdóttir, arkitekt hjá Teiknistofunni Stiku

13.35 Að byggja borg – Leiðbeiningar við gerð deiliskipulagsáætlana og aðrir hönnunarþættir

Borghildur Sturludóttir, deildarstjóri deiliskipulags hjá Reykjavíkurborg

13.50 Pallborðsumræður

Pétur Ingi Haraldsson, sviðsstjóri skipulagssviðs hjá Akureyrarbæ

Jón Kjartan Ágústsson, svæðisskipulagsstjóri höfuðborgarsvæðisins

Hildur Gunnarsdóttir, skipulagsfulltrúi hjá Hveragerðisbæ

14.20 Kaffihlé


Orkuskiptin


14.40 Hvað felst í orkuskiptunum?

Marta Rós Karlsdóttir, sviðsstjóri sjálfbærrar auðlindanýtingar og staðgengill Orkumálastjóra

15.00 Vindorkunýting á forsendum sveitastjórna

Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar og formaður umhverfis- og framkvæmdaráðs Múlaþings

15.20 Pallborðsumræður

Guðjón Bragason, sviðsstjóri lögfræði- og velferðarsviðs hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga

Hólmfríður Bjarnadóttir, skrifstofustjóri húsnæðis- og skipulagsmála hjá innviðaráðuneytinu

Gunnar Dofri Ólafsson, samskipta- og þróunarstjóri Sorpu

15.50 Samantekt og lokaorð

Ólafur Árnason, settur forstjóri Skipulagsstofnunar

16.00 Móttaka, léttar veitingar