Fréttir


  • Snókalönd

27.12.2021

Skipulagsstofnun staðfesti 22. desember 2021 breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðarkaupstaðar 2013-2025 sem samþykkt var í bæjarstjórn 8. desember 2021

Í breytingunni felst að skilgreint er nýtt afþreyingar- og ferðamannasvæði, AF5, við Snókalönd í upplandi Hafnarfjarðar vegna áforma um frekari uppbyggingu í tengslum við norðurljósa- og stjörnuskoðun.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.