Fréttir


  • Ráðagerði

4.6.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Seltjarnarnesbæjar vegna Ráðagerðis

Skipulagsstofnun staðfesti, 4. júní 2021, breytingu á Aðalskipulagi Seltjarnarnesbæjar 2015-2033 sem samþykkt var í bæjarstjórn 12. maí 2021.

Í breytingunni felst að 0,5 ha af íbúðarsvæði ÍB-10 er breytt í svæði fyrir verslun- og þjónustu. Um er að ræða eina lóð þar sem húsið Ráðagerði stendur en þar er heimilaður veitingarekstur.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.