Fréttir


28.12.2022

Staðfesting á Aðalskipulagi Akraness 2021-2033

Skipulagsstofnun staðfesti 27. desember 2022 Aðalskipulag Akraness 2021-2033 sem samþykkt var í bæjarstjórn 25. október 2022. Við gildistöku aðalskipulagsins fellur úr gildi Aðalskipulag Akraness 2005-2017 ásamt síðari breytingum.

Málsmeðferð var samkvæmt 30.-32. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagið á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar það hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.