Fréttir


  • Arborg_1671704920915

22.12.2022

Staðfesting á Aðalskipulagi Árborgar 2020 - 2036

Skipulagsstofnun staðfesti 22. desember 2022 Aðalskipulag Árborgar 2020 - 2036 sem samþykkt var í bæjarstjórn 14. desember 2022.

Við gildistöku aðalskipulagsins fellur úr gildi Aðalskipulag Árborgar 2010 – 2030 ásamt síðari breytingum. Samhliða tekur gildi skrá yfir vegi í náttúru Íslands, sem samþykkt var á sama fundi bæjarstjórnar.

Málsmeðferð var samkvæmt 30. - 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagið á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar það hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.