Fréttir


7.12.2022

Staðfesting á Aðalskipulagi Bolungarvíkur 2020-2032

Skipulagsstofnun staðfesti 7. desember 2022 Aðalskipulag Bolungarvíkur 2020-2032 sem samþykkt var í bæjarstjórn 14. júní 2022.

Um er að ræða endurskoðun á Aðalskipulagi Bolungarvíkur 2008-2020 sem fellur úr gildi við gildistöku hins nýja aðalskipulags.
Samhliða tekur gildi skrá yfir vegi í náttúru Íslands sem samþykkt var á sama fundi bæjarstjórnar.

Málsmeðferð var samkvæmt 30.-32. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagið á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar það hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.