Fréttir


26.6.2023

Staðfesting á Aðalskipulagi Dalabyggðar 2020-2032

 

Skipulagsstofnun staðfesti 23. júní 2023 Aðalskipulag Dalabyggðar 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 9. mars 2023.

Um er að ræða endurskoðun á Aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016 sem fellur úr gildi við gildistöku hins nýja aðalskipulags. Samhliða tekur gildi skrá yfir vegi í náttúru íslands sem samþykkt var á sama fundi sveitarstjórnar.

Málsmeðferð var samkvæmt 30.-32. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagið á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar það hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.