Fréttir


6.2.2018

Staðfesting á aðalskipulagi Djúpavogshrepps, Teigarhorn

Skipulagsstofnun staðfesti þann 2. febrúar 2018 breytingu á Aðalskipulagi Djúpavogshrepps 2008-2020, sem samþykkt var í sveitarstjórn 16. nóvember 2017.  Í breytingunni felst  að landnotkun í landi Teigahorns og Djúpavogshrepps við Eyfreyjunes er breytt. Í Teigarhorni eru 2,5 ha skilgreindir sem afþreyingar og ferðamannasvæði. Gerð er  breyting á legu Hringvegar nærri bæjarstæði á Teigarhorni og fyrir Eyfreyjunesvík þar sem gert er ráð fyrir áningarstað. Þá eru gerðar lítilsháttar breytingar á efnistökusvæðum nr. 30 og 31.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.