Fréttir


12.3.2019

Staðfesting á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030

Skipulagsstofnun staðfesti 8. mars 2019 Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar 2018-2030, sem samþykkt var í sveitarstjórn 24. janúar 2019.

Við gildistöku endurskoðaðs aðalskipulags fellur úr gildi Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar 2005-2025 ásamt síðari breytingum.

Málsmeðferð var samkvæmt 30. - 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagið á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.