Fréttir


  • Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2020_2040

29.4.2022

Staðfesting á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040

Skipulagsstofnun staðfesti, 28. apríl 2022, Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2020-2040 og skrá yfir vegi í náttúru Íslands, sem samþykkt voru í bæjarstjórn 16. desember 2021. Við gildistöku aðalskipulagsins falla úr gildi Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027 og Aðalskipulag Breiðdalshrepps 2018-2030 ásamt síðari breytingum.

Málsmeðferð var samkvæmt 30.-32. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagið á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar það hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.