Fréttir


14.12.2022

Staðfesting á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032

Skipulagsstofnun staðfesti 13. desember 2022 Aðalskipulag Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032, sem samþykkt var í sveitarstjórn 15. júní 2022.

Um er að ræða endurskoðun á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2008-2020 sem fellur úr gildi við gildistöku hins nýja aðalskipulags.

Samhliða tekur gildi skrá yfir vegi í náttúru Íslands, sem samþykkt var á sama fundi sveitarstjórnar.

Málsmeðferð var samkvæmt 30.-32. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagið á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar það hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.