Fréttir


  • Aðalskipulag Grundarfjarðarbæjar 2019-2039

30.4.2021

Staðfesting á Aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar 2019-2039

Skipulagsstofnun staðfesti, 29. apríl 2021 Aðalskipulag Grundarfjarðarbæjar og skrá yfir vegi í náttúru Íslands, sem samþykkt var í sveitarstjórn 8. október 2020. Við gildistöku aðalskipulagsins fellur úr gildi Aðalskipulag Grundarfjarðar 2003-2015 ásamt síðari breytingum.

Málsmeðferð var samkvæmt 30. - 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagið á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar það hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.