Fréttir


27.4.2023

Staðfesting á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032

Skipulagsstofnun staðfesti 26. apríl 2023 Aðalskipulag Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 22. mars 2023.

Við gildistöku aðalskipulagsins fellur úr gildi Aðalskipulag Hvalfjarðarsveitar 2008-2020 ásamt síðari breytingum. Samhliða tekur gildi skrá yfir vegi í náttúru Íslands, sem samþykkt var á sama fundi sveitarstjórnar.

Málsmeðferð var samkvæmt 30. - 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagið á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar það hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.