Fréttir


22.3.2018

Staðfesting á aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar, Sæborg í Aðalvík

Skipulagsstofnun staðfesti 20. mars 2018 breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 sem samþykkt var í bæjarstjórn 1. febrúar 2018.

Í breytingunni felst að jarðarinnar Sæborgar er getið í skipulagsákvæðum um frístundabyggð F41 í Aðalvík. Byggingarmagn og önnur ákvæði eru óbreytt.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.