Fréttir


28.2.2023

Staðfesting á Aðalskipulagi Rangárþings eystra 2020-2032

Skipulagsstofnun staðfesti 27. febrúar 2023 Aðalskipulag Rangárþings eystra 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 20. október 2022. Við gildistöku aðalskipulagsins fellur úr gildi Aðalskipulag Rangárþings eystra 2012-2024 ásamt síðari breytingum. Samhliða tekur gildi skrá yfir vegi í náttúru Íslands, sem samþykkt var í sveitarstjórn 8. september 2022.

Málsmeðferð var samkvæmt 30.-32. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagið á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar það hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.