Fréttir


9.10.2019

Staðfesting á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028

Skipulagsstofnun staðfesti, 3. október 2019, Aðalskipulag Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 25. júlí 2019. Við gildistöku endurskoðaðs aðalskipulags fellur úr gildi Aðalskipulag Rangárþings ytra 2010-2022 ásamt síðari breytingum.

Málsmeðferð var samkvæmt 30. - 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagið á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar það hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.