Fréttir


15.5.2023

Staðfesting á Aðalskipulagi Reykhólahrepps 2022-2034

Skipulagsstofnun staðfesti 12. maí 2023 Aðalskipulag Reykhólahrepps 2022-2034 sem samþykkt var í sveitarstjórn 8. febrúar 2023.

Um er að ræða endurskoðun á Aðalskipulagi Reykhólahrepps 2006-2018 sem fellur úr gildi við gildistöku hins nýja aðalskipulags. Samhliða tekur gildi skrá yfir vegi í náttúru íslands sem samþykkt var á sama fundi sveitarstjórnar.

Málsmeðferð var samkvæmt 30.-32. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagið á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar það hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.