Fréttir


26.1.2023

Staðfesting á Aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2020-2035

Skipulagsstofnun staðfesti 25. janúar 2023 Aðalskipulag Reykjanesbæjar 2020-2035 sem samþykkt var í bæjarráði 4. ágúst 2022.

Um er að ræða endurskoðun á Aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2015-2030 sem fellur úr gildi við gildistöku hins nýja aðalskipulags. Samhliða tekur gildi skrá yfir vegi í náttúru íslands sem samþykkt var á sama fundi bæjarráðs.

Málsmeðferð var samkvæmt 30.-32. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagið á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar það hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.