Fréttir


22.11.2022

Staðfesting á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2020-2036

Skipulagsstofnun staðfesti 21. nóvember 2022 Aðalskipulag Sveitarfélagsins Ölfuss 2020-2036 og skrá yfir vegi í náttúru íslands, sem samþykkt var í bæjarstjórn 22. september 2022.

Um er að ræða endurskoðun á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2010-2022 sem fellur úr gildi við gildistöku hins nýja aðalskipulags.

Málsmeðferð var samkvæmt 30.-32. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagið á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar það hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.