Fréttir


  • Aðalskipulag Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035

5.4.2022

Staðfesting á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035

Skipulagsstofnun staðfesti, 4. apríl 2022, Aðalskipulag Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 og skrá yfir vegi í náttúru Íslands sem samþykkt voru í sveitarstjórn 9. mars 2022. Um er að ræða endurskoðun á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021 ásamt síðari breytingum sem fellur úr gildi við gildistöku hins nýja aðalskipulags

Málsmeðferð var samkvæmt 30. - 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagið á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar það hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.