Fréttir


31.10.2019

Staðfesting á breytingu á á aðalskipulagi Grundarfjarðar vegna lengingar Norðurgarðs og efnistöku í Lambakróarholti

Skipulagsstofnun staðfesti, 28. október 2019, breytingu á Aðalskipulagi Grundarfjarðar 2003-2015, sem samþykkt var í bæjarráði 8. ágúst 2019.

Í breytingunni felst að Norðurgarður er lengdur um 130 m, athafnasvæði hafnarinnar stækkað um 0,45 ha og efnistökusvæði í Lambakróarholti stækkað um 2,9 ha.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.