Fréttir


  • Skógarhverfi, akranes

16.9.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Akraness vegna breytingu á mörkum Skógahverfis á Akranesi

Skipulagsstofnun staðfesti 15. september 2021 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017 sem samþykkt var í bæjarstjórn 3. september 2021.

Í breytingunni felst stækkun íbúðarsvæðis í Skógahverfi um 0,1 ha og skógræktarsvæði minnkar sem því nemur.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.