Fréttir


28.3.2018

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Akureyrar, dælustöð fráveitu við Sjafnargötu

Skipulagsstofnun staðfesti 21. mars 2018 breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, sem samþykkt var í bæjarstjórn 15. febrúar 2018.

Með aðalskipulagsbreytingunni er mörkuð stefna um 150-160 m² iðnaðarsvæði fyrir dælustöð fráveitu við norðaustur horn Sjafnargötu.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.