Fréttir


9.10.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Akureyrar vegna efnistöku við Glerárós

Skipulagsstofnun staðfesti 3. október 2019 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030, sem samþykkt var í bæjarstjórn 3. september 2019.

Í breytingunni felst að afmarkað er 0,62 ha efnistökusvæði (E6) við Glerárósa.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.