Fréttir


  • Akureyri

4.6.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Akureyrar vegna gistiþjónustu í íbúðarbyggð

Skipulagsstofnun staðfesti, 4. júní 2020, breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 5. maí 2020.

Breytingin felur í sér endurskilgreiningu á stefnu um rekstrarleyfisskylda gististarfsemi í íbúðarbyggð.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.