Fréttir


22.3.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Akureyrar vegna Hesjuvalla

Skipulagsstofnun staðfesti, 21. mars 2019, breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 22. janúar 2019.

Í breytingunni felst að óbyggðu svæði í landi Hesjuvalla er breytt í íbúðarbyggð, ÍB24B, 3500 m2 að stærð.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.