Fréttir


27.4.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Akureyrar vegna stækkunar frístundabyggðar F3, svæði við Hlíðarenda

Skipulagsstofnun staðfesti 27. apríl 2023 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 7. mars 2023.

Í breytingunni felst að frístundabyggðin F3, við Hliðarenda ofan Akureyrar, er stækkað um 3 ha til suð-vesturs á kostnað Skógræktar- og landgræðslusvæðis SL7. Á stækkuðu svæði er gert ráð fyrir nærþjónustu sem tengist frístundahúsunum.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.