Fréttir


7.11.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Akureyrar vegna stækkunar iðnaðarsvæðis I8B í Krossaneshaga

Skipulagsstofnun staðfesti 7. nóvember 2022 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 4. október 2022.

Í breytingunni felst að iðnaðarsvæði I8B við Krossaneshaga á Akureyri stækkar um 0,83 ha til suðurs inn á óbyggt svæði, úr 16,5 ha í 17,33 ha. Óbyggt svæði minnkar sem því nemur.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.