Fréttir


13.12.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Akureyrarbæjar vegna Hólasandslínu 3

Skipulagsstofnun staðfesti, 12. desember 2019, breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 5. nóvember 2019.

Í breytingunni felst að legu Hólasandslínu 3 (jarðstrengur) er breytt á tveimur stöðum, við suðurenda Akureyrarflugvallar og norðan Kjarnaskógar og frístundabyggðar við Kjarnalund.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.