Fréttir


13.12.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Akureyrarbæjar vegna stækkunar svæðis Glerárskóla S27

Skipulagsstofnun staðfesti, 12. desember 2019, breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 15. október 2019.

Í breytingunni felst að svæði samfélagsþjónustu, S27 Glerárskóli, er stækkað um 1 ha til vesturs vegna fyrirhugaðs leikskóla á svæðinu.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.