Fréttir


  • Drangar, frístundabyggð

23.8.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Árneshrepps í landi Dranga

 

Skipulagsstofnun staðfesti, 19. ágúst 2021, breytingu á Aðalskipulagi Árneshrepps 2005-2025 sem samþykkt var í sveitarstjórn 14. júlí 2021.

Breytingin felst í fjölgun frístundahúsa í allt að 14 á svæði fyrir frístundabyggð í landi Dranga (FS6).

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.