Fréttir


  • Þórisós, Ásahreppur

8.10.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Ásahrepps vegna efnistökusvæðis við Þórisós

Skipulagsstofnun staðfesti, 8. október 2021, breytingu á Aðalskipulagi Ásahrepps 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 15. september 2021.

Í breytingunni felst efnistaka og efnislosun við Þórisós til endurbóta á Þórisósstíflu.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.