Fréttir


  • Skálpanes, efnistökusvæði

16.9.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar vegna efnistökusvæða við Skálpanesveg

 

Skipulagsstofnun staðfesti, 15. september 2021, breytingu á Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 sem samþykkt var í sveitarstjórn 5. ágúst 2021.

Breytingin felst í tveimur nýjum efnistökusvæðum við Skálpanesveg, E129 og E130.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.