Fréttir


  • Skálabrekka, Bláskógabyggð

3.12.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar vegna frístundabyggðar í Skálabrekku

Skipulagsstofnun staðfesti, 3. desember 2021, breytingu á Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015 - 2027 sem samþykkt var í sveitarstjórn 1. september 2021.

Í breytingunni felst skilgreining svæðis fyrir nýja 25 ha frístundabyggð F10b, í hlíðinni ofan og vestan við Þingvallaveg og breyting á stærðum og afmörkun núverandi frístundabyggða að Skálabrekku, F10 og F11, en hámarksfjöldi lóða er óbreyttur.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.