Fréttir


  • Hreinsivirki, Reykholti

20.4.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar vegna hreinsivirkis í Reykholti

Skipulagsstofnun staðfesti 20. apríl 2022 breytingu á Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 sem samþykkt var í sveitarstjórn 17. febrúar 2022.

Í breytingunni felst að iðnaðarsvæði I10 fyrir hreinsivirki er fært til innan þéttbýlisins í Reykholti og fær nýtt númer, I24.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.