Fréttir


28.3.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar vegna landnotkunarbreytinga í landi Bergsstaða

Skipulagsstofnun staðfesti, 28. mars 2023, breytingu á Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015 - 2027 sem samþykkt var í sveitarstjórn 9. nóvember 2022.

Í breytingunni felst að frístundasvæðum F83 og F85 er breytt í landbúnaðarsvæði og breyting verður á afmörkun og stærð F84.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.