Fréttir


  • Reiðleið, Reykjavegur

16.9.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar vegna reiðleiðar meðfram Reykjavegi

Skipulagsstofnun staðfesti, 15. september 2021, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Bláskógabyggðar sem samþykkt var í sveitarstjórn 18. ágúst 2021.

Í breytingunni felst að reiðleið meðfram Reykjavegi er færð austan megin við Reykjaveg, að ánni Fullsæl.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.