Fréttir


  • Reiðleið, Bláskógabyggð

6.9.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar vegna reiðleiðar meðfram Skeiða- og Hrunamannavegi

Skipulagsstofnun staðfesti, 3. september 2021, breytingu á Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 sem samþykkt var í sveitarstjórn 5. ágúst 2021.

Í breytingunni felst tilfærsla á reiðleið meðfram Skeiða- og Hrunamannavegi.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.