Fréttir


  • Frístundabyggð, Rangárþingi ytra

8.4.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar vegna skipulagsákvæða í frístundabyggð

Skipulagsstofnun staðfesti 7. apríl 2022 breytingu á Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 sem samþykkt var í sveitarstjórn 3. febrúar 2022.

Í breytingunni felst að sett eru skýrari skipulagsákvæði varðandi hámarksbyggingarmagn á litlum frístundalóðum.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.