Fréttir


21.11.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar vegna stækkunar skógræktarsvæðis í Skálholti

Skipulagsstofnun staðfesti 21. nóvember 2022 breytingu á Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 sem samþykkt var í sveitarstjórn 22. júní 2022.

Í breytingunni felst að skógræktarsvæði SL12 í Skálholti, norðan Skálholtsvegar, stækkar úr 38 ha í 181 ha. Landbúnaðarsvæði minnkar til samræmis.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.