Fréttir


  • Úr aðalskipulagsuppdrætti Bláskógabyggðar

1.7.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar vegna Stekkatúns 1 og 5, landbúnaðarsvæði

Skipulagsstofnun staðfesti, 1. júlí 2021, breytingu á Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 sem samþykkt var í sveitarstjórn 24. júní 2021.

Í breytingunni felst að 11 ha af frístundabyggð í Stekkatúni (F73) er breytt í landbúnaðarsvæði.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.