Fréttir


6.10.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Blönduósbæjar vegna íbúðarbyggðar á Blönduósi, Húnabyggð

Skipulagsstofnun staðfesti, 5. október 2022, breytingu á Aðalskipulagi Blönduósbæjar 2010-2030 sem samþykkt var í sveitarstjórn Húnabyggðar 18. ágúst 2022.

Í breytingunni felst fjölgun íbúða í íbúðarbyggðum A-D á Blönduósi.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.