Fréttir


  • Kárastaðir

7.12.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar vegna athafnasvæðis í landi Kárastaða

Skipulagsstofnun staðfesti, 4. desember 2020, breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010 - 2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 14. maí 2020.

Í breytingunni felst stækkun athafnasvæði A2 um 2,2 ha og stækkar afmörkun þéttbýlisins Borgarness sem því nemur.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.