Fréttir


6.7.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar vegna Dílatanga og Borgarvogs, Borgarnesi

Skipulagsstofnun staðfesti, 1. júlí 2021, breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 10. júní 2021.

Í breytingunni felst breytt afmörkun landnotkunarreita og fjölgun íbúða við Dílatanga og Borgarvog í Borgarnesi auk þess sem stígur verður gerður á fyllingu og með brú við Borgarvog sem tengist samgöngustíg meðfram strandlengjunni.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.