Fréttir


4.1.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar vegna frístundabyggðar í landi Galtarholts 2

Skipulagsstofnun staðfesti 3. janúar 2023 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 10. nóvember 2022.

Í breytingunni felst að frístundabyggð F32 í landi Galtarholts 2 minnkar um 1,3 ha með samsvarandi stækkun landbúnaðarlands.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.