Fréttir


27.5.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar vegna Miðness

Skipulagstofnun staðfesti, 23. maí 2019, breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 10. janúar 2019.

Í breytingunni felst að nýtingarhlutfall á svæði blandaðrar landnotkunar (BL2) í gamla miðbæ Borgarness, Miðnesi, hækkar frá því að vera 0,4 í 1,1.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.