Fréttir


19.10.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar vegna miðsvæðis M3, Borgarbraut 55

Skipulagsstofnun staðfesti 19. október 2022 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 12. október 2022.

Í breytingunni felst að nýtingarhlutfall á miðsvæði M3, á lóð Borgarbrautar 55, er aukið úr 0,63 í 0,72.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.