Fréttir


6.6.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar vegna stækkunar þéttbýlis í Reykholti og íbúðarbyggðar í landi Breiðabólsstaðar II

Skipulagsstofnun staðfesti, 5. júní 2023, breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 13. apríl 2023.

Í breytingunni felst stækkun íbúðarbyggðar Í3 suðaustan við Reykholt úr 2,3 í 28,6 ha. Núverandi landnotkun svæðisins er skilgreind sem landbúnaðarsvæði og athafnasvæði A1 sem fellur hvort tveggja á brott. Þéttbýlismörk Reykholts breytast sem þessu nemur.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.