Fréttir


3.10.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar vegna þjónustustofnana á Hvanneyri

Skipulagsstofnun staðfesti 3. október 2022 breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 8. september 2022.

Í breytingunni felst stækkun þjónustusvæðis (Þ1) á Hvanneyri úr 1,1 ha í 3 ha og minnkar landbúnaðarsvæði sem því nemur vegna áforma um að reisa nýja jarðræktarmiðstöð Landbúnaðarhásóla Íslands.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.